Vonbrigði
Published: 11:11 PM GMT, 4-11-2009
Ég sætti mig ekki við að sama stefna sé uppi í málefnum flóttamanna og hjá fyrri ríkisstjórnum.
Við vorum mörg af miðju og vinstri væng stjórnmálanna sem gagnrýndum þessar ríkisstjórnír harðlega fyrir þá hörku sem flóttamönnum hefur einatt verið sýnd hérna og því miður virðist það ekki hafa breyst neitt.
Maður hafði búist við annarri og betri framkomu í garð flóttamanna en vonbrigðin eru mikil.
Athugasemdir (2)
Ég var einmitt að spá í því hvers vegna jafnaðarmenn og sósíalistar ættu svona erfitt með að ná landinu á réttan kjöl. Svo rann það upp fyrir mér, þeir eru með athyglisbrest.
Það er allt í tómu tjóni hérna og um leið og það sveimar framjá flóttamaður þá eru þeir eins og kettlingar gagnvar skínandi hlut. Einbeita sér. Það verða alltaf flóttamenn. Focus. Kommon, jú kan dú it.left by Uni Gislason . 5-11-2009 12:57 AM




Það dapurlegasta í þessu er að það óma í kollinum á manni bloggfærslurnar og pistlarnir sem maður sjálfur og vinir og kunningjar á vinstrivængnum hefðu skrifað ef allar aðstæður hefðu verið eins, nema ráðherrann hefði heitið Björn Bjarnason.
En af því að dómsmálaráðherra er vinaleg kona og vinstristjórn í landinu, þá er ætlast til þess að maður bíti í tunguna á sér... Ömurlegt helvíti.