Björgvin Valur - Bæjarslúðrið

- homo evropus

Innlendir fréttamiðlar og gagnlegir tenglar
Erlendir fréttamiðlar
Pólitík
Gáttir og veitur
Bloggdagar
««Mar 2010»»
SMTWTFS
  12
3
4
5
6
7
89
10
11
12
13
14
151617181920
21222324252627
28293031
Lífið er Leiðarljós
Published: 10:01 AM GMT, 28-01-2010

Ólafur Ólafsson Kaupþingsmaður fær að halda Samskipum en eigendur smáfyrirtækja sem þrýtur fé, missa allt sitt.

Í fréttum í morgun heyrði ég sagt:  Björgvin G. Sigurðsson, settur umhverfisráðherra.

Opinbert félag, RÚV, skýlir sér bakvið hlutafélagaformið og neitar að veita Fréttablaðinu upplýsingar; segir það alltof mikla vinnu að taka saman hve margar íslenskar kvikmyndir stofnunin keypti rekstrarárið 2007 - 2008.

Jón Ásgeir er búinn að "redda" milljarði til að halda nefndu Fréttablaði gangandi.

Maður úr innsta hring Sjálfstæðisflokksins er gerður að stjórnarformanni viðskiptabanka út á það eitt að vera úr innsta hring Sjálfstæðisflokksins og með honum í stjórn situr formaður skilanefdar forvera sama banka út á það eitt að vera formaður skilanefndar forvera sama banka.

Stéttskipt réttlæti blasir við.  Smákrimmar eru nánast dæmdir við handtöku á meðan skýrslur og réttarrannsóknir sem beinast að elítu landsins tefjast og frestast.

Þingmaður verður uppvís að lögbroti en formaður FLokksins segir nóg að hann skili illa fengnu fé til að fá syndakvittun og hæfnisvottorð til að sitja í nefnd Alþingis sem fjallar um hrunskýrsluna ef hún kemur.

Sami formaður er skilgetið afkvæmi spillingastjórnmála og viðskiptalífs.

Forseti Íslands hagar seglum eftir vindi.

Viðskiptaráð ætlast til að á það sé hlustað.*

Hæstaréttardómari skrifar grein í blað um Icesave, mál sem tengist vinum hans sem gerðu hann að dómara, mál sem sömu vinir vilja fara með fyrir dómstóla og þá væntanlega helst dómstól sem þeir eiga.

Það er handbolti í sjónvarpinu.

Mér finnst sem ég sé aukaleikari í lélegri sápuóperu, þætti númer 3982 og það skiptir áhorfandann engu þótt hann hafi bara séð fyrsta þáttinn og misst af næstu 3980 þáttum.

Sama gamla sagan.

*Viðskiptaráð hreykti sér af því 2006 að 90% tillaga þess yrði að lögum og það segir okkur hverjir höfðu þáverandi stjórnvöld í vasanum sem aftur útskýrir hvers vegna fór sem fór.

Dreifið á Facebook

Athugasemdir (5)

...svo sannarlega Björgvin, og miklu miklu meira.

left by Einar Ben . 28-01-2010 6:56 PM

Af gefnu tilefni: Það var verið að rifja upp ísbjarnarheimsókn 2008 en þá var settur umhverisráðherra, BGS, að hrósa Novator fyrir að vilja fjármagna björgun bangsa. Það var skelfilegt deja vu að vakna við þessa frétt en ég heyri nú þegar ég spila þetta aftur af Netinu, að um upprifjun var að ræða. Guske lof.

left by Björgvin Valur . 28-01-2010 5:22 PM

Svona nú, það hefst ekkert með svona bölmóði. Þú þarft að vera ákveðinn bjartsýnismaður og rómantíker til að hefja þjóðfélagsbyltingu. Það er annað hvort það eða stöðnun og dauði. Franska byltingin átti sér stað af því öllum var ljóst að franska konungdæmið og aðallinn var orðinn svo spilltur, úrkynjaður og óskilvirkur að því varð ekkert bjargað lengur með hægri þróun, sem þó oftast er rétta leiðin. Það sama á við um íslensku elítuna. Þegar sú staða er komin upp á borðið þarf að gera eitthvað róttækt.

Ég tek þó undir með þér að líklega er þetta tómt mál að tala um fyrr en eftir handboltann.

left by Sveinbjörn . 28-01-2010 4:53 PM

Það nennir því enginn fyrr en handboltinn er búinn. Svo held ég að það sé ekki í þjóðarsálinni að hefja eða vera með í byltingu. Satt best að segja grunar mig að þessi þjóð sé fökkd.

left by Björgvin Valur . 28-01-2010 4:42 PM

En eigum við þá ekki bara að hefja byltinguna Björgvin? Fyrst stjórnin treystir sér ekki til þess að taka á valdaelítunni í landinu á almenningur að gera það. Almenningur tekur þá hreinlega völdin á Alþingi, með góðu eða illu og skipar utanþingsstjórn. Hennar fyrsta mál væri að frysta allar eigur útrásarvíkinga og setja þá sem hér dvelja í farbann. Hefjum bara byltinguna, til er ég. Ég vildi óska þess að aðrir kostir væru í stöðunni en ég sé þá ekki.

left by Sveinbjörn . 28-01-2010 4:38 PM
Var það eitthvað sérstakt?
Varðandi
Af heimaslóðum
Rúnturinn
Bátar og skip
Eldri færslur
Fornleifar
Links
Template by

Free Blog-City Templates

BLOGGER