Björgvin Valur - Bæjarslúðrið

- homo evropus

Innlendir fréttamiðlar og gagnlegir tenglar
Erlendir fréttamiðlar
Pólitík
Gáttir og veitur
Bloggdagar
««Mar 2010»»
SMTWTFS
  12
3
4
5
6
7
89
10
11
12
13
14
1516
17
181920
21222324252627
28293031
Þjóðaratkvæðagreiðslur á Íslandi og lýðræði fyrir opnum tjöldum
Published: 8:02 PM GMT, 1-02-2010

Forseti lýðveldisins fer nú mikinn um heiminn og dásamar Ísland og gamlar og rótgrónar lýðræðishefðir þess.  Skemmst er að minnast þess þegar hann í viðtali á BBC gortaði sig af því að þjóðin fengi að kjósa um Icesave og það væri meira lýðræði en aumir Bretar byggju við.

Honum láðist að taka fram að þetta verður fyrsta þjóðaratkvæðagreiðsla hér á lendi síðan 1944 og ef við leggjum þann eina skilning í lýðræðið að því fleiri sem þjóðaratkvæðgreiðslurnar eru þá sé það meira, trúi ég að við sigrum Breta með einu marki gegn engu.

Ég horfði á fréttirnar í sjónvarpinu áðan, mínu elskaða RÚV, og sá að þar var verið að yfirheyra fyrrum stjórnanda í hollenska seðlabankanum vegna bankahrunsins.  Hann sat þarna fyrir framan nefnd, líklega þingnefnd, og svaraði þeim spurningum sem til hans var beint.

Þessi maður hélt því m.a. fram að stjórnendur seðlabankans okkar hefðu logið að hollenskum starfsbræðrum sínum og nú bíð ég spenntur eftir að heyra og sjá leiðtaoga byltingarinnar, þá Davíð og Hannes, segja okkur hverskonar kommúnistadindlar og smámenni þetta eru þarna í Hollandi og lýðinn lepja það upp sem fyrr.

Enda er hér gríðarlegt lýðræði, segir forsetinn.

Hið sama gerðu Bretar í fyrra þegar þeir yfirheyrðu sitt fólk vegna bankahrunsins; það var fyrir opnum tjöldum og í beinni útsendingu.  Fyrir helgi var Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra, yfirheyrður í beinni vegna stríðsins í Írak og sú er venjan meðal helstu lýðræðisþjóða að leiðtogar og valdsmenn svari fyrir sig í áheyrn lýðsins sem ræðið er kennt við.

Líklega standa Bandaríkin fremst að þessu leyti.

Á Íslandi fóru yfirheyrslur fram bakvið luktar dyr og með mikilli leynd og enn bíðum við eftir niðurstöðum, m.a. vegna þess að elítan sem var yfirheyrð og skömmuð, hefur fengið frest til að skila skriflegum andmælum.  Sextán mánuðum eftir hrun hefur okkur, þ.e.a.s. þessari þjóð sem býr við svo ríkt og rótgróið lýðræði að sögn forsetans, ekki verið sagt neitt um það hvað það var sem í raun gerðist, þótt vissulega sé langt síðan við fórum að geta í eyðurnar.

Í sjálfri vöggu lýðræðisns, að mati forseta vors, hefur hið opinbera ekki stunið upp einu orði um orsakir hrunsins eða hvað gera skuli við þá sem því ollu.

Og svo ég haldi aðeins áfram. Hversu margir ráðherrar og þingmenn í nágrannalöndum okkar hafa þurft að hrökklast úr embættum sínum vegna þess sem sumir leiðtogar á Íslandi kalla mistök?  Meira að segja landsliðfyrirliði Englendinga, John Terry, á nú á hættu að komast ekki í enska landsliðið vegna þess að hann lét gredduna hlaupa með sig í gönur og hélt framhjá konunni sinni með konu vinar síns.  Vissulega fremur subbulegt og jafnvel þótt Terry sé þeirra besti fótboltamaður, eru enskir að velta fyrir sér að hafa hann heima á HM í sumar.

Hérna er talað um að "okkar besta fólk" hafi verið að störfum fyrir útrásina og þess vegna getum við ekki verið án starfskrafta þess.

Hvar er lýðræðið, hvar er gegnsæið, hvar stendur fólk ábyrgt gjörða sinn?

Alveg örugglega ekki á Íslandi.

Ekki enn sem komið er að minnsta kosti.

Dreifið á Facebook

Athugasemdir (17)

Kalli; þú stekkur dálítið úr einu í annað. Hvað nákvæmlega áttu við með gegnsæi? Ég hef bent á að ég hef í mörg ár getað flett upp nákvæmum, nafngreindum upplýsingum um framlög til flokka og einstaklinga. Það gengur sérlega illa á Íslandi. Þú segir þetta ekki skipta máli og ekki segja neitt. Ég hef sagt að ég geti flett upp kostnaðarreikningum þingmanna - eitthvað sem þú getur ekki látið þig dreyma um. Það finnst þér engu skipta. Ég gæti haldið svona áfram - en það er tilgangslaust, því mér sýnist þú bara hoppa eitthvað annað þegar ég bendi á eitthvað. Þú bendir á ágæta frétt um Lordana, en virðist ekki átta þig á að hún mun valda því kerfinu verður breytt - rétt eins og gert var í HoC. Þar má benda á ég get flett upp tengslum þingmanna við fyrirtæki (hagsmunatengsl) og þeim ber skylda til að upplýsa um slík tengsl ef þeir tjá sig um mál á þingi sem snerta eigin hagsmuni. Slík regla hefði verið ágæt á Íslandi síðustu ár, ekki satt? Sjáðu til, mér dettur ekki í hug að halda því fram pólitíkusar á Bretlandi séu heiðarlegri en þeir íslensku....eða í nokkru öðru landi, ef því er að skipta. Munurinn er hins vegar sá að menn eru oftar látnir fjúka hér og hneyksli skila sér yfirleitt alltaf í hertu eftirliti og breyttum reglum. Á Íslandi er fjallað um mál í viku og svo deyja þau drottni sínum. Þá sjaldan einhverju er breytt, komast menn svo upp með að gefa skít í reglurnar, líkt og glæný mál sýna. Tekið skal fram að ég hef líka búið á Íslandi - þess vegna skil ég ekki hvers vegna þú næstum berst gegn því að líta á hvað vel er gert annars staðar og viðurkenna gott væri að innleiða slíkt á Íslandi. Svo má auðvitað forðast það sem menn telja verra - t.d. þarf varla Lorda á Íslandi :-)

En það er einfaldlega ekki hægt að hrekja það að gegnsæið er meira í Bretlandi en á Íslandi. Reyndar miklu, miklu meira.

Varðandi síðustu athugasemd bið ég þig að afsaka spurninguna um aldur. Hún var barnaleg.

left by baldur mcqueen . 2-02-2010 8:22 PM

Já, g. Með 63% kjörsókn tókst sitjandi forseta að ná sér í 85% greiddra atkvæða gegn þeim Baldri Ágústssyni og Ástþóri Magnússyni.

1996, þegar hann var kjörinn í fyrsta sinn, var hann kjörinn með 41,4% greiddra atkvæða.

left by Björgvin Valur . 2-02-2010 9:54 AM

Forsetinn Íslands var kjörinn með meirihluta greiddra atkvæða síðast er forsetakosningar fóru fram eða 2004. Hann var svo sjálfkjörinn 2008 sem þýðir í raun að hann naut þá eindregins meirihlutastuðnings.

left by g . 2-02-2010 8:32 AM

Baldur,

Það að þú getir flett upp framlögum til flokka og þingmanna segir afskaplega lítið um gegnsæi bresks þjóðlífs eða lýðræði. Enda var ég að benda á fjölda stærri mála sem vísa einmitt til þess gangstæða.

Með sömu röksemdafærslu viltu halda fram að vegna þess að það séu apara í dýragarðinum í London þá þýði það í Bretlandi sé fjölbreyttara dýralíf en í Afríku?

Eru t.d. mútur vegna fyrirspurnartíma breskra þingmanna inn í þessum framlögum sem þú getur flett upp? (http://www.timesonline.co.uk/tol/news/politics/article5627971.ece).

PS. Og ég er örugglega eldri en þú Baldur fyrst þú spyrð, og já ég hef búið í Bretlandi.

left by Kalli . 1-02-2010 11:49 PM

Kalli

Návæmlega. Telegraph birtir upplýsingar - og það skilar sér í breytingum. Reyndar má taka fram að í fjölda ára hef ég getað flett upp framlögum til flokka og flokksmanna, án þess Telegraph hafi haft þar mikið að segja. Sem er strax mun betra en á Íslandi.

Einkennilegt er þó, þegar ég bíð þér í heiðarlega keppni, að þú bakkar á staðnum og ferð að tala um leyniþjónustuna og annað slíkt. Vilt fá upplýsingar þaðan. Með fyllstu virðingu; hvað ertu gamall?

left by baldur mcqueen . 1-02-2010 11:18 PM

Fyrirgefðu 35% atkvæða en fengu 40% þingsæta. En samsteypustjórnir eru ekki algengar þar.

left by Björgvin Valur . 1-02-2010 10:29 PM

Nei, með 40% atkvæða og eigum við að gera ráð fyrir að það sé vegna einmenningskjördæma? Svona eins og þegar við kjósum forseta?

left by Björgvin Valur . 1-02-2010 10:26 PM

Til dæmis var núverandi ríkisstjórn Bretlands kosin með 1/3 atkvæða.

left by Kalli . 1-02-2010 10:23 PM

Meiri hluta kjósenda þarf heldur ekki til að mynda stjórn á Íslandi með misvægi atkvæða eins og það er. Og núverandi forseti lýðveldisins hafði ekki meiri hluta atkvæða á bakvið sig þegar hann var kjörinn. Ekki sá síðasti heldur.

left by Björgvin Valur . 1-02-2010 10:18 PM

Björgvin,

Ástæða þess að þjóðaratkvæðagreiðslur teljast merkilegar í Bretlandi er sú að það er í eina skipti sem meirihluti landsmanna tekur ákvörðun beint eða í gegnum fulltrúa.

Eins og ég benti á fyrir ofan þá er ávallt (eða síðan um miðja síðustu öld) minnihluti á bakvið meirihluta þingsins í Bretlandi.

Þessvegna eiga þeir kannski erfitt með að skilja hugtakið um "meirihlutavilja kjósenda". Þeir hafa "aldrei" upplifað það.

left by Kalli . 1-02-2010 10:14 PM

Baldur eina ástæða þess að breskir þegnar hafa þær upplýsingar óritskoðaðar eru vegna þess að þeim var lekið til Telegraph. Einungis stóð til að birta þessa reikninga vel ritskoðaða, enda þeir ekki vanir að ljóstra upp um þingmenn sína.

Hversu mikið gegnsæi er í bretlandi þegar kemur að málefnum hersins, leyniþjónustunnar, utanríkisráðuneytisins eða jafnvel ráðuneyti bankamála?

Ekkert.

Segðu mér frekar hvað er langt síðan bresk ríkisstjórn hafði *meirihluta atkvæða* á bak við sig? 20 ár? 40 ár? Bretar virðast ekki hafa miklar áhyggjur af því.

Segðu mér síðan frá því hvernig þjóðhöfðingi landsins er *kosin* eða þá Lávarðadeild þingsins.

Og þá getum við rabbað saman. :-)

left by Kalli . 1-02-2010 10:11 PM

Ég stend þá leiðréttur og bæti við að það sem þeir kalla referendum eru í raun fleiri en fjórar ef við tökum með þær sem ekki náðu til alls ríkisins. http://en.wikipedia.org/wiki/Referendums_in_the_United_Kingdom

left by Björgvin Valur . 1-02-2010 9:34 PM

Mér skilst að frá 1944 hafi farið fram 4 þjóðaratkvæðisgreiðslur í Bretlandi. Þannig að staðan er 4-1 fyrir þá.

left by Páll Valur . 1-02-2010 9:29 PM

Maður tekur ofan fyrir svona bloggi.

Kalli. Sá sem heldur því fram að gegnsæið í Bretlandi sé EKKI meira en á Íslandi, þarf sannarlega að lesa sér til um málið. Sendu mér póst af vefnum mínum og ég skal keppa við þig - opinberlega og gegnsætt. Við skorum á hvern annan að finna upplýsingar um hitt og þetta í stjórnsýslunni og sjáum hverjum gengur betur :-) Svo ég hefji leikinn nú þegar - skora ég á þig að finna síðasta hótelreikning Sigmundar Davíðs hvar hann ferðaðist vegna embættis, hve hár reikningurinn var og hvenær. Ég vil að sjálfsögðu afrit af honum. Einfalt mál í Bretlandi, hvað með Ísland?

left by baldur mcqueen . 1-02-2010 9:21 PM

Ef einhvern tímann hefur verið ástæða til erlendrar íhlutunar í spillt smáríki þá er það Ísland. Það lagast ekkert - það bara versnar. Klíkurnar ráða öllu og þurfa ekki einu sinni byssur - slík er hollustan.

Kannski að Max Keiser hitti naglann á höfuðið. Bloggið er líka orðið þreytt endurtekning á sömu frösunum og ergelsinu sem alltaf fer í flokkahjólförin við minnsta titring.

Það er enginn að hlusta en allir að tala til að koma sínum skoðunum að.

left by TH . 1-02-2010 8:43 PM

Ég gæti ekki verið meira sammála þér.

left by Ragnar K Sigurdsson . 1-02-2010 8:37 PM

Sá sem heldur því fram að gegnsæið sé meira í Bretlandi heldur en hér á Íslandi ætti lesa sig meira til.

left by Kalli . 1-02-2010 8:27 PM
Var það eitthvað sérstakt?
Varðandi
Af heimaslóðum
Rúnturinn
Bátar og skip
Eldri færslur
Fornleifar
Links
Template by

Free Blog-City Templates

BLOGGER