Hagræðing að hætti Íslandspósts
Vegna nýrra og ferskra hugmynda stjórnenda Íslandspóst um hagræðingu sem m.a. annars snúast um að hætta að mestu að bera út póst, langar mig að segja ykkur frá hagræðingu fyrirtækisins eins og hún birtist okkur hérna á Stöðvarfirði og Fáskrúðsfirði.
Kannski var ég búinn að segja þetta áður en okkur gamalmennunum fyrirgefst endurtekning.
Þannig er málum háttað að pósturinn kemur fimm sinnum í viku frá Reykjavík með póstflutningabíl. Hann ekur hér í gegnum þorpið eftir þjóðveginum og framhjá póstafgreiðslunni, sem er okkar ástkæri Landsbanki. Hann stoppar ekki og sparar sér þannig um það bil tíu metra krók.
Á Fáskrúðsfirði fer póstbíllinn ekki út í bæ, heldur tekur hann vinstri beygju og ekur sem leið liggur til Reyðarfjarðar þar sem hann er tæmdur. Pósturinn til Fáskrúðsfjarðar er flokkaður þar en pósturinn til Stöðvarfjarðar ekki. Póstpokarnir eru svo settir í annan bíl sem ekur með þá til Fáskrúðsfjarðar og Stöðvarfjarðar eftir sama þjóðvegi og póstbíllinn fór fyrr um daginn, nema nottlega í gagnstæða stefnu.
Hagræðingin felst m.ö.o. í því að láta póstbílinn ekki stoppa á austurleið og tefjast um hálftíma á leiðinni til Reyðarfjarðar en borga þess í stað verktaka fyrir að keyra póstinum til baka á pósthúsin sem hann ók framhjá.
Þetta myndi örugglega vera til mikillar hagræðingar ef væri flugvöllur á Reyðarfirði og pósturinn fluttur þangað loftleiðina en því er ekki til að dreifa.
Þess má svo geta að póstbíllinn stoppar við öll pósthús á leiðinni suður um kvöldið.
Vegir hagræðingarinnar eru óafsakanlegir, en í þessu tilfelli snýst hún um að réttlæta byggingu nýs pósthúss á Reyðarfirði á síðustu metrunum fyrir hrun.
Athugasemdir (5)
Ég var ekki að meina fínflokkun....þ.e. hvaða bréf fer í hvaða hús á hverjum stað. Það sem vildi benda á að ef bíllinn á að stoppa á Stöðvarfirði ( og öðrum þorpum og bæjum ) á leiðinni að sunnan þarf þá ekki að grófflokka póstinn í Reykjavík ?....hvað fer á Stöðvarfjörð, hvað fer á Fáskrúðsfjörð, hvað fer á Djúpavogi o.s.frv. ? Kveðja
Hann hefur um langa hríð verið flokkaður á hverju pósthúsi fyrir sig og er það enn sunnan Fáskrúðsfjarðar. Það sem ég átti við er að póstbíllinn að sunnan ekur um hlað pósthússins á Stöðvarfirði en stoppar ekki þar, heldur er pósturinn tekinn út úr honum 45 km síðar á Reyðarfirði og ekið til baka í öðrum bíl.
Kannski er ég að misskilja eitthvað í skrifum þínum en þarf ekki að flokka póstinn áður en hann er borinn út á fjörðunum ? Viltu láta gera það í Reykjavík ? Kveðja
Enn skondnara er að skoað feril bréfs sem sent er innanbæjar:
http://www.raudhausar.com/gunnar/?p=180



Pósturinn er grófflokkaður í Reykjavík og kemur austur í pokum merktum póstnúmerum. Það eina sem gerist á Reyðarfirði er að hann er borinn milli bíla til að aka honum til baka sömu leið og hann kom og það að sjálfsögðu verður til þess hann er borinn út seinna en ef póstbíllinn setti hann út á leiðinni austur.