Björgvin Valur - Bæjarslúðrið

- homo evropus

Innlendir fréttamiðlar og gagnlegir tenglar
Erlendir fréttamiðlar
Pólitík
Gáttir og veitur
Bloggdagar
««Mar 2010»»
SMTWTFS
  12
3
4
5
6
7
89
10
11
12
13
14
151617181920
21222324252627
28293031
NN og Óskar Nafnleyndar tjá sig
Published: 7:02 PM GMT, 8-02-2010

Að hlusta á Guðlaug Þór Þórðarson alþingismann, kalla eftir auknu gagnsæi og opinni stjórnsýslu, er nóg til að koma iðrum manns í slíkt uppnám að við stórslysi liggur. Kvöldmaturinn kemur upp í háls og það er með herkjum að hann helst niðri.

Guðlaugur Þór, þessi mesti leynistyrkjaþegi allra tíma og þingmaður flokks sem ekki greinir frá því hverjir lögðu honum til peninga, vogar sér að standa frammi fyrir alþjóð og heimta gagnsæi.

Væri ekki nær að þessi fulltrúi á þjóðþinginu segði okkur hverjir hafa borgað fyrir kosningabaráttu hans áður en hann fer að krefjast þess að aðrir leggi spilin á borðið?  Jafnvel þótt hann hafi verið að tala um banka.

Guðlaugi fer þessi geislabaugur sem hann setti upp í sjónvarpsfréttunum áðan mjög illa, og samlíkingarnar sem mér koma í hug eru ekki hæfar til birtingar hérna.

Þingmaður í boði NN og Óskars Nafnleyndar ætti að sleppa því að tjá sig um leynd og aðra slíka ömurð.

Dreifið á Facebook

Athugasemdir (7)

Nafnanum „finnst“ að allir eigi að birt allt en honum „finnst“ líka Samfylkingin verst, langverst, þrátt fyrir að hún komist næst því sem honum „finnst“ að eigi að gera. Rétt að benda síðubloggara á það.

left by Pétur . 9-02-2010 11:20 AM

Já ég er alveg sammála því að Guðlaugur, Össur, Steinunn, Árni Þór, Björgvin og öðrum þeim sem bjóða sig fram til alþingis eða sveitarstjórna sé skylt að birta öll framlög, bein og óbein, öll ekki bara sum, og allir flokkar, ekki bara sumir, og ekki bara sumt hjá sumum. Allt. Allir. Púnktur. Og rétt að benda síðubloggara á að mín skoðun er sú að af öllum flokkum þá er Samfylkingin að þessu leyti verst, langverst. Hins vega var ég alveg sammála nafna mínum í umræddri frétt að það er algjörlega óþolandi feluleikur í gangi hjá Arion banka, Landsbanka og Íslandsbanka. Ég bara skil ekki af hverju Ólafur á 90% í Samskipum eftir fjárhagslega endurskipulagningu Arion, bara skil það ekki. Hann skuldar bankanum margfalt, ábyggilega tífalt verðmæti fyrirtækisins. Og ég skil ekki af hverju Jóhannes á að fá forkaupsrétt í Högum, bara skil það ekki, hann skuldar bankanum sínum fjórfalt verðmæti fyrirtækisins!. Bara skil það ekki. Og svo skil ég ekki af hverju Högum er ekki skipt upp í 3-4 einingar, til að auka samkeppni í smásölu, bara skil það ekki, vilja menn setja á markað fyrirtæki með yfir 50% markaðshlutdeild, ég bara skil þetta ekki og eftir því sem lengra líður frá hruninu þá skil ég minna og minna. Ég bara skil þetta ekki.

left by Guðlaugur Þ . 9-02-2010 11:09 AM

spuni í þágu útrásarvíkinganna

left by padre . 9-02-2010 10:36 AM

NN?

lol wut?

left by Uni Gislason . 8-02-2010 11:08 PM

Ef fréttamaðurinn hefði verið ekki verið í FLokknum, hefði hann spurt Guðlaug Þór: Ertekki'að djóka?

left by Erla Halldórs . 8-02-2010 10:31 PM

Rosalega er þetta aumur málflutningur hjá þér. Það má vel vera að þér finnist með réttu eða röngu að Guðlaugur tengist spillingarmálum órjúfanlegum böndum en gerir það það að verkum að aðrir megi það í skjóli þess að: a) hafa ekki gert það áður? b) gera það í minna mæli en fyrirrennarar? c)spilling í nafni annarra en sjálfstæðismanna er miklu betri spilling?

Hvað er það í máli Guðlaugs sem þú getur ekki tekið undir? Er það ekki rétt hjá manninum að núverandi stjórn fékk umboð sitt til þess einmitt að taka á þessum málum, spillingunni og siðleysinu? Eru virkilega ósammála Guðlaugi um að óeðlilegt sé að Ólafur hafi fengið Samskip á silfurfati og Baugsfeðgar fái Haga? Er ekki málið að vera aðeins samkvæmari sjálfum sér í málflutningi og hrósa því sem hróss er vert. Ég fagna innilega réttlætiskennd Guðlaugs hvort sem hún er nýtilkomin eða ekki.

left by Þórúr Áskell Magnússon . 8-02-2010 8:28 PM

Er Guðlaugur Þór ekki bestur til að benda á spillingu? Hann er nú einu sinni sérfræðingur í faginu.

left by TH . 8-02-2010 8:05 PM
Var það eitthvað sérstakt?
Varðandi
Af heimaslóðum
Rúnturinn
Bátar og skip
Eldri færslur
Fornleifar
Links
Template by

Free Blog-City Templates

BLOGGER