Enn og aftur fatta ég ekki
Ég hef velt því fyrir mér síðan ég heyrði í fréttum að í gær að Steingrímur, Bjarni og Sigmundur hefðu farið til Icesave-viðræðna í Hollandi, hvort PR-her Samfylkingarinnar hafi verið í fríi, sofið yfir sig eða hreinlega verið rekinn.
Þetta lítur nefnilega illa út. Það er eins og enginn hafi nennt í ferðina frá Samfylkingunni og það hljómar ekki sannfærandi að segja að ríkisstjórnin hafi látið duga að senda fjármálaráðherrann fyrir sína hönd.
Stjórnandstaðan sendir tvo og því hefði maður talið að stjórnarliðar gerðu slíkt hið sama og Samfylkingin þá sent einn; ef ekki ráðherra þá t.d. formann fjárlaganefndar eða bara einhvern þingmann þess vegna.
Svo gæti nefnilega farið, að ef þessi ferð verður til fjár og þjóðin himinlifandi í kjölfarið, þá verði þeir sem í hana fóru baðaðir í dýrðarljóma og gerðir að hetjum. Strákarnir okkar, þannig séð.
Þess vegna fatta ég ekki fjarveru stærsta flokks landsins við þetta samningaborð.
Athugasemdir (9)
Hvað er óþjóðhollusta Heiða? Þetta er mikið notað en ég hef aldrei skilið það.
Það er ömurlegt að lesa skrif Sævars og Una hér að framan þeir gleðjast og vona innilega að hópnum sem fór til Hollands takist ekki að ná betri Icesave samningi. Þetta eru vægt til orða tekið óþjóðhollir menn sem svona skrifa. Mikið eru þeir menn miklir pólitískir ofstækismenn sem vona að þjóðin nái ekki betri samningum, þeir vona sem sagt innilega að hinn almenni Íslendingur þurfi að borga sem mest, einstæðar mæður, öryrkjar og almennt launafólk á að borga meira en þarf svo flokkurinn þeirra bíði ekki pólitískan skaða. Svei-attan segi ég nú bara. Hitt er svo annað mál og kemur þessu ekkert við að ég skil ekki Samfylkinguna að þora að sleppa Steingrími einum með hinum tveimur formönnunum saman til útlanda. Hvað halda menn að þeir tali um á hótelinu um kvöldið eða á flugvöllum meðan beðið er eftir flugvél ? Heldur einhver að þeir sitji bara og ræði um veðrið? þetta ferðalag án Samfylkingar gæti verið upphafið að því að ríkisstjórnin hætti.
Ef samningsdrög samninganefndar verkalýðsfélags eru felld aftur og aftur af félagsmönnum (eða trúnaðarráði) er til siðs að senda þá sem helst beita sér sem nýja samninganefnd. Klókt og rökrétt.
Því miður er þessi færsla hér dæmi um alveg hrikalega ranga og vitlausa pólitík á Íslandi. Framsóknarmaður, sjálfstæðismaður eða vinstri grænn má ekki koma vel út, það gæti varpað skugga á Samfylkinguna, sem gæti komið sér illa ímyndarlega séð!. Ömurleg pólitík. Spunadvergar Samfylkingarinnar setja greinilega ekki þjóðarhag í fyrsta sæti. Hvar er samstaðan, að íslendingar standi saman sem heild, t.d. hvernig væri að við stæðum saman, sýndum samstöðu, hvað get ég gert fyrir þjóð mína, en ekki hvernig kemur flokkurinn minn best út. Án þess að ég hafi neitt á móti Samfylkingunni þá held ég að þessi umræða hér í þessari færslu sé á hræðilegum villigötum. Vonandi er sá sem skrifaði þessa setningu hér á vefinn sáttur við sjálfan sig "Þessi ferð verður ekki til fjár. Engar áhyggjur" Ömurlegt! Vextir í núverandi samkomulagi um Icesave eru hræðileg byrði fyrir fyrir þjóðina, og jafnvel 0,2% lækkun vaxta er talin í milljörðum! Best væri náttúrulega að hafa Icesave kröfuna vaxtalausa eins og almennt eru um kröfur í þrotabú. Og ath eignir Landsbankans munu aldrei koma til frádráttar þessum vöxtum þar sem þeir eru ekki forgangskröfur og munu því alltaf lenda á Íslendingum. Sýnum samstöðu og stöndum saman.
Heyrði ferska kjaftasögu úr flugvallarbiðsal. Gerðist í gær, svo alveg glæný. Þekktur maður sem er með tengsl við ýmsa háttsetta ráðamenn, sagði að ríkisstjórnin væri að springa. Líflínan væri einn til tveir sólarhringar, þá yrði þetta tilkynnt opinberlega. Í framhaldinu sagðist hann gera ráð fyrir, en tók þó fram, að það væri hans ágiskun, að þeir flokkar sem fóru utan saman ætluðu að mynda nýja ríkisstjórn. Ég veit að samtalið átti sér stað því viðmælandinn sagði mér þessa sögu. Hinsvegar er ég ekki alveg viss um að þetta reynist rétt. Efa það reyndar. Hinsvegar má alltaf vona. Mikið væri nú gott að losna við samfylkinguna úr stjórn. Þá held ég stóra veislu með íslenska fánann í þema. Jibbí!!
Kannski er tilgangurinn með því að senda Bjarna og Sigmund sá að slíta stjórnmálasambandi við Bretland og Holland.
Þessi ferð verður ekki til fjár. Engar áhyggjur.
Annars er Icesave á könnu Steingríms Jóhanns og starfsbróður hans í Hollandi - það væri ekki viðeigandi að senda t.d. ráðherra utanríkis með í för án þess að hann hitti þá einnig starfsbróður sinn í Hollandi. Asnalegt? Kannski, en þannigerþaðbara.Er málið ekki sáraeinfallt ? Það er verið að gefa stjórnarandstöðu strákunum tækifæri á að hitta alvörumenn í útlöndum sem koma þeim í skilningum um staðreyndir málsins ? Eiithvað sem ekki er möguleiki hér á eyjunni okkar-einangruð sem við erum. Síðan koma þeir heim og belgja sig út sem forframaðir viskumenn frá alvarlegum og viturlegum viræðum . Sennilega næst fram 0.1-0.2 % lækkun á vaxtastigi Icesave og þeir félagar Bjarni og Sigmundur telja sig hafa bjargað landinu. Þetta er aðferð til að þvo þeim í framan....Og Icesave málinu lýkur í lok næstu viku. Síðan er það rnnsóknarskýrslan-Davíð er byrjaður að pakka í vörn fyrir sig - í Mogga dagsins....Það tekur eitt við af öðru .




Já Heiða, hvað er óþjóðhollusta? http://www.bonogtvottur.is