Björgvin Valur - Bæjarslúðrið

- homo evropus

Innlendir fréttamiðlar og gagnlegir tenglar
Erlendir fréttamiðlar
Pólitík
Gáttir og veitur
Bloggdagar
««Mar 2010»»
SMTWTFS
  12
3
4
5
6
7
89
10
11
12
13
14
151617181920
21222324252627
28293031
Byltingin hefst að leik loknum
Published: 3:01 PM GMT, 29-01-2010

Ef það er eitt sem valdhafar á Íslandi þurfa ekki að óttast, þá er það að fólkið í landinu hefji alvöru byltingu.  Ég hef lengi talið að bylting gæti aldrei átt sér stað hérlendis vegna hugarfars þjóðarinnar og nú hef ég fengið sönnun þeirrar tilgátu upp í hendurnar.

Á morgun klukkan tvö átti nefnilega að mótmæla skerðingu svæðisstöðva RÚV á Egilsstöðum og Ísafirði en þeim mótmælum hefur verið frestað til klukkan fjögur vegna handboltaleiks.

Það á sumsé að fresta mótmælum sem beinast að RÚV vegna þess að mótmælendur ætla að vera heima og horfa á beina útsendingu á RÚV.

Sorry folks, en ég ætla bara í ríkið.

Dreifið á Facebook

Athugasemdir (3)

Fyrir um 30 árum varð að fresta baráttufundi hjá verkalýðsfélögunum vegna yfirvofandi verkfalls. Ástæða var sú að þáttur með Onedin skipafélaginu var á dagskrá á sama tíma. Niðurstaðan: Skipuleggjendur mótmæla hafa ekkert lært af sögunni.

left by Axel . 30-01-2010 7:09 AM

Fólk er fífl

left by spritti . 30-01-2010 12:40 AM

Sterkur leikur.

left by Uni Gislason . 29-01-2010 6:08 PM
Var það eitthvað sérstakt?
Varðandi
Af heimaslóðum
Rúnturinn
Bátar og skip
Eldri færslur
Fornleifar
Links
Template by

Free Blog-City Templates

BLOGGER