Bull, ergelsi og pirra
Davíð Oddsson er orðinn með öflugri bloggurum landsins, enda hefur hann allt það til að bera sem hann sagði sjálfur að einkenndi flesta bloggara; bull, ergelsi og pirra.
Nýjasta bloggið hans býr að þessu öllu en í því líkir hann DV við skolprör sem veitir sullinu til sjávar. Snyrtilegt búmerang það, því hann er að tala um fréttir DV af sjálfum sér og Mogganum.
Ég læt öðrum um að ákveða hvert skolpið sé í samlíkingu bloggarans.
Athugasemdir (8)
Ekki skal ég röfla um innantómt innihaldið á pistlum sem ég ekki les almennt en þessi eini skolppistill er nú hvorki lipurlega skrifaður né skemmtilega stílfærður. Sögur af ritsnilld moggabloggarans mikla eru stórlega ýktar ;)
Heyrðu Ómar ertu alveg húmorslaus þegar gert er grín að Samfylkingarfólki ? Þú ert ekki einn um það á þeim bænum. En heyrðu, lastu skrif mannsins í blaðinu um helgina sem lenti í því að kaupa miða í leikhúsið en svo sat Ingibjörg Sólrún í sætinu hans og neitaði að færa sig " af því hún vildi sitja hjá vinkonu sinni" sem var Þórhildur Þorleifsdóttir ? Mér finnst nú að Ingibjörg Sólrún, Árni Páll og Jóhanna ættu að temja sér minni hroka í umgengni við okkur venjulegt fólk í þessu landi. Ertu ekki sammála ?
" þá hlýtur þú að vera mér sammála um að þetta er skrifað á hnittinn og skemmtilegan hátt ?"
Nei.Sæll Ómar. Þú segist hafa lesið sumt af því sem ritstjóri moggans hefur skrifað í blaðið en og þá hlýtur þú að vera mér sammála um að þetta er skrifað á hnittinn og skemmtilegan hátt ? Ég er ekki að byðja þig að vera sammála DO í pólitíkinni en það er ekki hægt að neita því að hann tekur rugludalla eins og Árna Pál og tætir sundur á háðinu meðan hann fer frekar mildum höndum en þó háðskum um Jóhönnu blessaða enda er hún ekki neitt neitt og alvöru menn hafa ekki unun af því að atast í þeim sem einskis meiga sín. Hvað sem því líður þá er Mogginn orðið mikið læsilegra blað en það var hjá þessum hringlanda manni Ólafi Stephensen sem ekki gat ákveðið sig í hvorn fótinn hann ætlaði að stíga. Með kveðju Heiða
Hef lesið sumt af þessu.
Það sem mér finnst athyliverðast er að sami maður var valdamesti maður landsins í áratugi. Hálf vandræðalegt að hugsa til þess.Er Davíð farinn að skrifa undir kvenmannsnafni núna?
Davíð oddsson er að mínu mati alveg frábær sem leiðarahöfundur Moggans og Staksteinahöfundur. Ég las aldrei leiðara Moggaans en nú bíð ég spent eftir að lesa leiðarana en ekki síður Staksteina. Staksteinarnir um það þegar Össur og Árni Páll reiddu upp hnefann undir International-söngnum var hreint alveg frábær. Byrjaði með tilvitnun í gamla nasista í Bæjaralandi sem gleymdu sér og lyftu hendinni í nasistakveðjku við 70 ára gamlan slagara og svo samlíkingin þegar tveir gamlir kommar Árni Páll og Össur gleyma stað og stund þegar þeir heyra Internationalinn og rétta upp hönd með kreftan hnefa rétt eins og trúarleiðtogar þeirra í Moskvu gerðu hér áður í Kreml. Hreint frábærir Staksteinar, og háðið er skrifað á svo léttan og skemmtilegan hátt að unun er að því að lesa þetta. Mæli með skrifum Davíðs Oddssonar ef menn vilja lesa eitthvað skemmtilegt.




Nallinn var saminn í Frakklandi á nítjándu öld, fyrir tíð sovétríkjanna. Davíð og Heiða virðast tengja stéttabaráttu verkafólks við kommúnisma.