Björgvin Valur - Bæjarslúðrið

- homo evropus

Innlendir fréttamiðlar og gagnlegir tenglar
Erlendir fréttamiðlar
Pólitík
Gáttir og veitur
Bloggdagar
««Mar 2010»»
SMTWTFS
  12
3
4
5
6
7
89
10
11
12
13
14
1516
17
181920
21222324252627
28293031
Afskriftir og uppskipti
Published: 7:11 PM GMT, 3-11-2009

Jóhanna Sigurðardóttir telur að bjóða eigi út stór fyrirtæki sem komin eru í þrot og lenda í höndum bankanna og við blasa afskriftir lána til að bjarga fyrirtækjunum.  Hún segir ekki sjálfgefið að gömlu eigendurnir haldi fyrirtækjunum eftir margra milljarða skuldafslátt.

Þessu er ég sammála og ég vil ganga lengra.  Mér þætti bara allt í lagi að fyrirtækjum eins og Högum yrði skipt upp í frumeindir sínar.

Hagkaup, Bónus, 10-11, Bananar, Útilíf, Debenhams, Karen Millen og hinfyrirtækin þrettán sem eru eign Haga mætti alveg selja út úr móðurfélaginu og slá þar með a.m.k. tvær flugur í einu höggi.

Bankinn fengi eitthvað upp í skuldir Haga og ef séð væri til þess að enginn fengi að eignast nema eitt fyrirtækjanna, beint eða óbeint, yrði samkeppnissjónarmiðum gert hærra undir höfði en áður hefur þekkst á Íslandi.

Fyrir nú utan gagnsæið.

Dreifið á Facebook

Athugasemdir (3)

Algjörlega sammála þér Björgvin, eins og oft áður.

left by Eiður . 5-11-2009 1:14 PM

Ég er alveg sammála ykkur krötum með þetta Björgvin, auðvitað á að bjóða upp þessi fyrirtæki og ríkisbankarnir fá eitthvað upp í veð og lánin. Það er ekki bara verslunar og þjónustu fyrirtæki sem hafa rúllað yfir og bankarnir halda lífi í nefna má iðnaðar og sjávarútvegsfyrirtæki svo sem Þorbjörn hf í Grindavík nær væri að búta hann upp og selja í pörtum, skip, fiskvinnslu tæki og kvóta.

left by Arnar Snær Sigurjónsson . 4-11-2009 9:19 PM

"Jóhanna Sigurðardóttir telur ..."

Já, en hvað hyggst ríkisstjórn Samfylkingar og Vg. fyrir? Að láta skeika að sköpuðu eða brjóta upp fákeppnisokrið?

left by Rómverji . 4-11-2009 9:12 AM
Var það eitthvað sérstakt?
Varðandi
Af heimaslóðum
Rúnturinn
Bátar og skip
Eldri færslur
Fornleifar
Links
Template by

Free Blog-City Templates

BLOGGER