Björgvin Valur - Bæjarslúðrið

- homo evropus

Innlendir fréttamiðlar og gagnlegir tenglar
Erlendir fréttamiðlar
Pólitík
Gáttir og veitur
Bloggdagar
««Mar 2010»»
SMTWTFS
  12
3
4
5
6
7
89
10
11
12
13
14
1516
17
181920
21222324252627
28293031
Af húmoristum
Published: 6:01 PM GMT, 31-01-2010

Ég veit ekki hvers vegna, en þegar ég horfði á þennan Max Keiser í Silfri Egils í dag, kom mér Ástþór Magnússon í hug en það þarf sosem ekki að vera slæmt.  Alls ekki.

Fyrst glotti ég og þegar gaurinn sagðist hafa hitt menn á bar í Reykjavík sem sögðu honum að þeir ætluðu að rústa íslensku efnahagslífi, hætti ég að glotta því þá rifjuðust upp fyrir mér allir grænu kallarnir sem ég hitti stundum þegar ég er fullur.

Þegar hann svo sagði "capital punishment for crimes against capital," sá ég að hann var ekki vitund líkur Ástþóri því sá elskar jú friðinn og er örugglega ekki fylgjandi dauðarefsingum.  Það er nefnilega svo, að þótt einhverjir sjái fyndinn orðaleik út úr þessu hjá Max karlinum, þá þýðir þetta einfaldlega "dauðarefsing við fjármagnsglæpum."

Ég man eftir viðlíka orðaleik frá því að ég keyrði leigubíl útí útlöndum.  Þá hringdi einhver snillingur í lögguna og sagði að það væri sprengja í tiltekinni verslun í miðborginni og nokkrum götum var lokað á meðan löggan leitaði að sprengjunni.  Hinsvegar var gaurinn sem vann á leigubílaradíóinu húmoristi og orðaði tilkynninguna til okkar bílstjóranna svona:  "The police are searching for a bomb in Queen Street.  I´d advise all of you driving a Holden Kingswood to stay away from the City."

Sama orðið, bomb, var á þessum slóðum notað um sprengjur og bíla sem voru druslur, en munirinn á Max Keiser og skemmtikraftinum hjá Yellow Cabs er sá að annar var að messa yfir reiðri þjóð en hinn að segja nokkrum leigubílstjórum brandara.

Þegar viðtalinu lauk, ákvað ég að gera engum þann óleik að bera hann sama við Max Keiser.  Ekki einu sinni í huganum.

Restin af Silfrinu var fín og fullt mark takandi á þeim sem þar mæltu.  En jú, kannski ég líki Max við aukamyndirnar sem voru einu sinni í bíó áður en aðalmyndin hófst.

Húmoristarnir sem komu fram undir nafninu The Three Stooges voru oft í því hlutverki.

Dreifið á Facebook

Athugasemdir (1)

http://blog.decadium.com/wp-content/uploads/2008/02/fgsfds.jpg

left by Einar E . 31-01-2010 6:48 PM
Var það eitthvað sérstakt?
Varðandi
Af heimaslóðum
Rúnturinn
Bátar og skip
Eldri færslur
Fornleifar
Links
Template by

Free Blog-City Templates

BLOGGER