Björgvin Valur - Bæjarslúðrið

- homo evropus

Innlendir fréttamiðlar og gagnlegir tenglar
Erlendir fréttamiðlar
Pólitík
Gáttir og veitur
Bloggdagar
««Mar 2010»»
SMTWTFS
  12
3
4
5
6
7
89
10
11
12
13
14
1516
17
181920
21222324252627
28293031
Eitt kjördæmi
17-03-2010

Þegar dreifarinn ég bauð mig fram í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmum fyrir síðustu alþingiskosningarnar, þá var það fyrst og fremst til að undirstrika þá bjargföstu trú mína að allt landi skuli vera eitt kjördæmi.

Það er ekki á neinn hátt hægt að réttlæta það að atkvæðið mitt í Norðausturkjördæmi hafi meiri vigt en atkvæði föður míns sem kýs í Kraganum.  Svo dæmi sé tekið.  

Alltof lengi hefur pólitík á Íslandi snúist um það að landsbyggðapólitíkusar stundi það helst að finna vinnu handa öðrum dreifurum, og þar með fær hugtakið atvinnupólitíkus nýja merkingu, á meðan hinum stóru málum er mestmegnis sinnt af þingmönnum höfuðborgarsvæðisins.

En ég hef sagt þetta allt áður og það oft; mig langaði bara að fagna því að nú liggi fyrir frumvarp um að gera allt landið að einu kjördæmi.

Það var tími til kominn.

Framboð í Fjarðabyggð II
14-03-2010

Einn aðstandenda Fjarðalistans hefur haft við mig samband og sagt að Jóna Árný Þórðardóttir, sem ég sagði í færslu hér að neðan að yrði efst á listanum, verði alls ekki á honum.  Ekki neinsstaðar.

Ég fór því aftur á slúðurstúfana og það er mér sönn ánægja að vera fyrstur með þær fréttir að í efsta sæti Fjarðalistans verður Elvar Jónsson á Norðfirði og í öðru sæti Esther Ösp Gunnarsdóttir á Reyðarfirði.

Landfræðilega séð er þetta svo gjörsamlega brilljant; hann er fæddur og uppalinn á Stöðvarfirði en hefur búið lengi á Norðfirði og hún óx úr grasi á Fáskrúðsfirði en býr nú á Reyðarfirði.

Og svo eru þau bæði ung og fersk í bransanum sem er ótvíræður kostur.

Framboð í Fjarðabyggð
14-03-2010

Framsóknarmenn í Fjarðabyggð héldu prófkjör í gær og kusu sér nýjan leiðtoga, Jón Björn Hákonarson frá Norðfirði.  Prófkjörið var öllum opið og ber að hrósa framsóknarmönnum fyrir það.  Tek þó fram að ég kaus ekki, enda hef ég haft það fyrir reglu að skipta mér ekki af því hverja flokkar sem ég ætla ekki að kjósa, hafa á sínum listum.

Sjálfstæðisflokkurinn í Fjarðabyggð kaus sér líka nýjan leiðtoga í síðustu viku, Jens Garðar Helgason frá Eskifirði en íhaldið hafði þann háttinn á að bjóða félagsmönnum að velja á listann með póstkosningu.   Ég þarf ekki að taka fram að ég kaus ekki þarna heldur.

Þriðja framboðið sem á fulltrúa í bæjarstjórn Fjarðabyggðar, hefur enn ekki birt lista sinn og fáir utan einhverrar valnefndar, vita hvaða nöfnum er verið að raða á hann enda ekki hefð fyrir opnu og sýnilegu lýðræði hjá þessu framboði.  Það sendi bréf í hús í Fjarðabyggð í janúar og bað fólk um að benda á annað fólk sem gæti verið á listanum og síðan hefur ekki til framboðsins spurst.  Þó er vitað að allir fjórir bæjarfulltrúarnir ætla að hætta í vor auk nokkurra fleir sem voru ofarlega á listanum.

Ég hef þó fyrir því heimildir að efst á Fjarðalistanum verði Jóna Árný Þórðardóttir frá Norðfirði og fyrrum fjármálastjóri Fjarðabyggðar.  Það gæti þó breyst eftir að ljóst varð að Norðfirðingur varð efstur hjá Framsókn því pólitík í Fjarðabyggð snýst um landafræði öðru fremur og því eins líklegt að nú standi yfir dauðaleit að Reyðfirðingi eða Fáskrúðsfirðingi til að taka efsta sætið.

Og svo er alltaf þrálátur orðrómur um sérframboð frá Norðfirði þar sem margir eru æfir við Fjarðalistann sinn vegna lokunar bæjarskrifstofunnar þar í bæ.

Kemur í ljós.

Óheiðarlegur eða kjáni?
13-03-2010

Vísir segir í dag að brot Ásbjörns Óttarssonar verðir ekki rannsakað, en eins og þið munið fór hann frjálslega með heimildir til að greiðar sér arð út úr fyrirtækinu sínu. 

Rökin eru þau að ekki er hægt að sanna að um ásetningsbrot hafi verið að ræða vegna þess að endurskoðandinn sem kvittaði upp á arðgreiðsluna er ekki lengur á meðal vor. Eina vitnið sem gat úr því skorið hvort Ásbjörn er óheiðarlegur eða kjáni, er látið.

En það finnst mér ekki vera mergurinn málsins.  Gaurinn hefur viðurkennt að hafa brotið lög og hverju skiptir þá hvort um ásetning eða gáleysi er að ræða?  Jú, maður gæti sætt sig við að við broti af gáleysi væri vægari refsing en við ásetningsbroti, en að hann skuli sleppa við rannsókn og málsókn og sitja áfram á þingi eins og ekkert hafi í skorist, er samt sem áður blaut tuska í andlit almenns velsæmis.

Í lok fréttarinnar er sagt að samkvæmt lögum sé hægt að "leiðrétta slík mistök" með eftirágreiðslum og það sýnir enn og sannar að það er farið vægari höndum höndum um hvítflibbaglæpona en þá sem stela á alþýðlegri máta.

Þeim býðst ekki að leiðrétta sín mistök með eftirágreiðslum.

Lög á brask
11-03-2010

Þegar ég heyrði í fréttum að setja hefði átt lög á verkfall flugumferðarstjóra í kvöld, fékk ég hugmynd og það er ástæða til að fagna, því slíkt hendir ekki oft.

Mér datt sumsé í hug, að fyrst hægt er að setja lög svona einn tveir og þrír á löglega boðað verkfall stéttarfélags, hvort ekki megi setja lög nú fyrir miðnættið sem banna þeim sem hafa stöðu grunaðs manns í bankahrunsrannsókninni eða verða bornir þungum sökum af rannsóknarnefnd Alþingis, að stunda viðskiptum á Íslandi.

Þarna er ég að sjálfsögðu að vísa til þess að auðmenn eru að fá helvíti mikla fyrirgreiðslu í bönkum landins, á meðan almenningur sekkur sífellt dýpra í skuldir og vonleysi.

Það voru, að mér sýndist, allir flokkar á Alþingi reiðubúnir að skella lögum á verkfall flugumferðarstjóra og því ætti ekki að nást sama eindrægni og samstaða um þessa einstöku hugmynd mína?

Hvað segiði um það, háttvirtir þingmenn; lög á brask grunaðra fjárglæframanna áður en klukkan slær tólf?

Hönnuður óreiðunnar
10-03-2010

Mér sýnist Moggavefurinn vera orðinn varnarþing og málgagn Bjögganna.  Sjálfra Icesave-óreiðumannanna.  Þar eru birtar athugsemdalaust fréttatilkynningar þeirra um að víxillinn sem þeir tóku fyrir Landsbankanum hafi verið greiddur 2005.  Aðrir miðlar segja að fleiri lán hafi verið tekin; m.ö.o. víxillinn framlengdur, eins og hún Soffía bendir á hérna.

En það ætti ekki að koma neinum á óvart að Mogginn sé fréttaveita fallinna víkinga með fallna víxla; ritstjóri Moggans er hönnuður óreiðunnar og stærsti víxill sögunnar féll á þjóðina eftir að hann fór höndum um Seðlabanka Íslands.

Jáið
7-03-2010

Ég verð sífellt stoltari af jáinu mínu í þjóðaratkvæðagreiðslunni í gær; ég er óendanlega ánægður með að vera ekki í þeim hópi sem Bjarni Ben, Sigmundur Davíð og fleiri segja nú að hafi lýst vantrausti á ríkisstjórnina í kosningum þótt spurt hafi verið hvort lög númer eitt frá 2010 ættu að halda gildi.

Svei mér þá, ég er ekki viss um hvernig ég myndi taka því að vera í hópi þeirra nytsömu sakleysingja sem þessir menn telja sitt bakland og nota nú sem þrýstihóp til að komast til valda.

Þess vegna er ég ánægður með sjálfan mig fyrir að hafa sagt já.

Sei sei já.

Klukkan tifar
6-03-2010

Nú hefur stjórnarandstaðan sagt að hún vilji taka Icesave málið upp á þingi áður en haldið verði áfram með viðræður við Breta og Hollendinga um lausn þess og verður sú afstaða að teljast vægast sagt undarleg í ljósi þess að stjórnarandstaðan hvatti fólk til að segja nei, m.a. með þeim rökum að betri samningur væri á borðinu.  Ef Ögmundur og félagar styðja þá kröfu, má ljóst vera að ríkisstjórnin er fallin.

Áður en lengra er haldið, vil ég benda fólki á að skoða Icesave klukkuna , en hún telur hve mikið töfin á afgreiðslu Iceasve málsins hefur kostað okkur frá áramótum.  Þegar þetta er skrifað, eru það rúmir 160 milljarðar króna.

Þar sem ég efast um að hægt sé að mynda nýja og sterka ríkisstjórn úr núverandi samsetningu flokka á þingi aðra en samsteypustjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks og ég held að lítill áhugi sé fyrir slíku, yrði kosið um næstu mánaðamót og síðan færu í hönd stjórnarmyndurnarviðræður og enginn veit hve langan tíma þær tækju, það veltur allt á því hvaða möguleikar yrðu uppi á borðum.

Og þá væntanlega munum við kjósa um næstu Icesave lög í sumar eða haust, því ef forsetinn ætlar að vera samkvæmur sjálfum sér hlýtur hann að senda þau þjóðinni til staðfestingar ef einhverjir biðja hann um það.

En klukkan tifar og sultarólin herðist.

Óreiðumennirnir
6-03-2010

Bara svo því sé til haga haldið, þá eru óreiðumennirnir að baki Icesave Sjálfstæðisflokksins, þeir Sigurjón Þ. Árnason fyrrum bankastjóri gamla Landsbankans, Björgólfur Guðmundsson fyrrum stjórnarformaður sama banka, Kjartan Gunnarsson sérlegur komissar flokksins í þeirri stjórn og varaformaður hennar, Halldór J. Kristjánsson kollegi Sigurjóns, Björgólfur Thor Björgólfsson annar tveggja stærstu eigenda bankans og hliðvörður í "Money Heaven," auk nokkurra minni spámanna sem nú eru m.a. varaþingmenn Sjálfstæðisflokksins.

Allt er þetta fólk Sjálfstæðisflokknum þóknanlegt enda helstu styrktaraðilar hans í gegnum tíðina.

Icesave er hugarfóstur þessa fólks sem stafaði í skjóli Sjálfstæðisflokksins; hann gaf þeim bankann, hann leyfði þeim að fara sínu fram með bankann vegna þess að forysta hans sá þar framtíðar uppsprettu peninga fyrir flokkinn - þess vegna er Icesave skilgetið afkvæmi Sjálfstæðisflokksins og óreiðumennirnir hans.

Það sem þjóðin óskar sér fær hún
5-03-2010

Ég tek undir með Einari Kárasyni þegar hann segir í pistli á Pressunni og er að tala um stjórnandstöðuna: "Þeim er fjandans sama um samninga okkar og samskipti við önnur lönd, það eina sem þeir hafa áhyggjur af er að áframhaldandi ríkisstjórnarsamstarf vinstriflokkanna muni verða til að grafa undan því valda- og forréttindakerfi sem þeir hafa komið sér upp á undanförnum tveimur áratugum, meðal annars með einkavæðingu auðlindanna og annarra sameiginlegra eigna þjóðarinnar."

Akkúrat.  Flóknara er það nú ekki og Icesave sem Sjálfstæðisflokkurinn fann upp, hefur verið hið ákjósanlegasta mál til að brjóta þessa ríkisstjórn niður með, en við skulum auðvitað aldrei gleyma að því að án aðstoðar villtu deildarinnar í VG og forsetans, hefði það aldrei tekist.  Trúið mér, að ef þessi lög um Icesave hefðu verið afgreidd um áramót eins og til stóð, værum við öll búin að gleyma málinu og farin að hugsa um eitthvað annað og uppbyggilegra.

Fyrir mér er brýnt að klára Icesave og við munum þurfa að gera það fyrr eða síðar; fyrr er betra og helst á morgun úr því sem komið er.  Vitiði nefnilega til, að verði málið ekki leyst þegar Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn komast í ríkisstjórn, saman eða með öðrum, verður málið keyrt í gegnum Alþingi með hraða ljóssins og ekkert samráð haft við neinn um það, hvorki tilvonandi stjórnarandstöðu né spekinga úti í bæ.  Jú, Davíð, Björn og Hannes fá örugglega að ráða einhverju en aðrir ekki.

Ég ætla að segja já á morgun en ég þykist vita að þjóðin muni ekki staðfesta lögin og tek því undir með öðrum mætum manni, Guðmundi Gunnarssyni, sem hvetur Jóhönnu til að skila umboði sínu til Bessastaða á sunnudag.

Þá fær þjóðin nefnilega það sem hún vill og á skilið; Sjálfstæðisflokkinn aftur til valda með aftursætisbílstjórana Davíð og Hannes hvítþvegna í farteskinu.

Varðandi
Af heimaslóðum
Rúnturinn
Bátar og skip
Eldri færslur
Fornleifar
Links
Template by

Free Blog-City Templates

BLOGGER